22.1.2009 | 15:50
Mótmælendur.......Takk!!!
Ég mætti í vinnuna kl 11 í morgun fyrir framan alþingishúsið. Var reyndar bara til kl 14, en þeir 30-40 mótmælendur sem voru þarna fyrstu 2 tímana eiga heiður skilið fyrir að halda loganum í byltingunni áfram. Þetta var allt friðsælt og þannig á það helst að vera. Okkur var fært kakó og kaffi, og lögreglu voru boðin blóm.
Ég hef samt séð lögreglu í ham þegar við vorum 30 manns einn morgunin, þá voru þeir borubrattir sumir lögregluþjónarinir. Ég var löngu búinn að ákveða að ég skildi standa grafkyrr og veita enga mótstöðu ef ég yrði beðin um að færa mig, en ég var ekkert "beðin" um að færa mig heldur var ráðist að mér fleygt í burtu. Og nokkrum öðrum mótmælendum sem stóðu kyrrir við hliðina á mér var skellt í gangstéttina. Það er ekki hægt að skella skuldinni alltaf á mótmælendur ef uppþot verða, lögregla getur líka ögrað og misst tökin.
Ég er ávalt á móti ofbeldi, en held bara að t.d. hrokinn sem ríkisstjórnin sýnir fólki, ýti undir að fólk missir sig.
höldum áfram að mótmæla friðsamlega!!!!
Táragasi beitt á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Dorje
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
heyr heyr!
mbl (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 16:03
Það er varasamt að dæma alla lögreglumenn sem fara fram úr sér. Mörgum lögreglumönnum finnst þetta erfitt og ég tala nú ekki um þegar fólk setur myndir ásamt heimilisföngum þeirra á vefinn. Þeir eru að vinna sína vinnu og þeir mótmælendur sem beita ofbeldi eyðileggja fyrir fólki sem veit hverju það er að mótmæla, og þeir sem beita ofbeldi eru svo vitlausir að ég efa að þeir vitu um hverju sé verið að mótmæla. Þetta eru ábyggilega góðkunningjar lögreglunnar
Guðrún Vestfirðingur (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 17:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.