Brown: Eigum í höggi við fólk tengt al-Qaeda

Ég er fegin því að "bretar ætla að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist" annars hefði verið tilvalið fyrir þá að kenna Írönum eitthvað um lýðræði, því við vesturlandarbúar eru mjög framarelga í þeim efnum þ.e.a.s. lýðræði, þó reyndar við þufum að berja eða bomba lýðræðinu inn í hausinn á þeim þá mun það marg borga sig á endanum er það ekki, Írak td. er á góðri leið með að verða fyrirmyndar lýðræðisríki í miðri Arabíu.  Ég get ekki stillt mig um að lýsa furðu minni á þeim áróðri sem ég hef lesið um á ýmsum bloggsíðum hérna gegn trúnni Íslam og Múslimum almennt.  Alltaf erum við ótrúlega hissa ef fólk sem eru múslimar fremja eða reyna að fremja glæpi.....(því oft misheppnast það all svakalega). Málið er að þeir hafa eitthvað að segja með þessum athöfnum og ekki er nú mikill tími eyddur í að spá í það að hvers vegna í ósköpunum einhver er til í að sprengja sig í loft upp. Það gæti td. verið að viðkomandi hafi fengið nóg af því að vera kúgaður, átt litla sem enga framtíð, geta ekki stundað vinnu sína eða bara misst fjölskyldu sína í annars konar hryðjuverkum (hryðjuverkum hins góða).  Þetta er staðreyndin í Palestínu svo dæmi sé tekið, þeir eiga kannski ekki mikla framtíð fyrir sér í augnablikinu.  Ég á ofboðslega erfitt með flestan áróður yfir höfuð og ágætt að lofta því út hér, því ég fékk mig fullsaddan á þessum áróðri og þröngsýni á bloggsíðu sem ég rambaði á í dag.

 bestu kveðjur!


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bobbi Víkingur

Ertu að halda því fram að Arabar séu manneskjur líka?  Það er löngu búið að sanna það með vísindalegum aðferðum, eins og t.d. hauskúpumælingum og svo framvegis, að Arabar geta ekki samkvæmt skilgreiningu talist manneskjur.  Að minnsta kosti ekki á sama hátt og Gyðingar og vinstrimenn.  Auk þess er ekkert gott sagt um þá í Biblíunni. 

p.s. áður en hinir ágætu bloggvinir mínir betan og heiðrún fara að ausa sér yfir mig, þá flokkast þetta undir kaldhæðni.  Ég er ekki með íslenska orðabók við hendina en þið ættuð áreiðanlega að geta spurt einhvern hvað það þýðir.

Bobbi Víkingur, 2.7.2007 kl. 01:24

2 Smámynd: Dorje

jújú þeir eru manneskjur að ég held en bara 500 árum á eftir okkur í stjórnarfari og siðsamlegri hegðun.  ég held bara að við þolum ekki biðina eða þessi 500 ár til að geta átt eðlileg og góð samskipti og viðskipti við þá.  Hvernig urðum við aftur Kristinn hér á landi? Það komu trúboðar og buðu fólki að skrá sig og fylgja Jesú, en Heiðnir og galdramenn voru ekkert of hrifnir af því í fyrstu en létu undan á endanum því þeir máttu velja að fylgja Jesú eða að allt yrði tekið af þeim, ég hef því miður engar heimildir um þetta en þetta getur alveg eins hafa verið í Færeyjum.  En hvað með Víkinga, er eitthvað minnst á þá í biblíunni?

Dorje, 2.7.2007 kl. 02:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Dorje

Höfundur

Dorje
Dorje
Höfundur hefur ennþá skoðanir á mörgu sem skiptir engu máli
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband